Galatabréfið
1 Frá Páli, boðbera Krists, og öðrum kristnum mönnum sem hér eru.
2 Til safnaðanna í Galatalandi.
6 Ég undrast hve fljótt þið hafið snúið ykkur frá Guði, sem af kærleika sínum og miskunn bauð ykkur hlut í eilífa lífinu, sem hann gefur í Kristi. Þið eruð strax komin út á annan „veg til himins“, – veg sem hreint ekki liggur til himins! 7 Það er ekki um neina aðra leið að ræða en þá sem við bentum ykkur á. Þið hafið látið blekkjast af þeim sem rangsnúa sannleikanum um Krist.
8 Ef einhver boðar aðra leið til Guðs en þá sem við boðuðum ykkur, þá sé hann bölvaður, jafnvel þótt það væri ég eða engill frá himni. 9 Ég endurtek: Ef einhver boðar annað fagnaðarerindi en það sem þið hafið tekið á móti, þá komi bölvun Guðs yfir hann.
10 Ykkur er ljóst að ég er ekki að reyna að þóknast ykkur með fagurgala og smjaðri. Nei, ég reyni að þóknast Guði. Ef ég væri enn að reyna að þóknast mönnum, þá gæti ég ekki verið þjónn Krists.
11 Kæru vinir, sú leið til himins, sem ég predika, er ekki byggð á hugmyndum eða óskhyggju manna. 12 Boðskapur minn er frá sjálfum Kristi Jesú og engum öðrum! Það var hann sem lagði mér orð í munn. Hann einn uppfræddi mig.
13 Þið vitið hvernig ég var meðan ég var í Gyðingdómnum. Ég elti hina kristnu miskunnarlaust, kom þeim á kné og gerði mitt besta til að útrýma þeim. 14 Ég var einn trúhneigðasti Gyðingur landsins og reyndi eins og ég gat að fara eftir öllum gömlu siðareglum trúar minnar.
15 En skyndilega breyttist allt! Sannleikurinn er sá, að áður en ég fæddist, hafði Guð af miskunn sinni útvalið mig sér til eignar. 16 Síðan kallaði hann mig, því hann ætlaði mér að bera syni sínum vitni meðal heiðingjanna og kynna þeim gleðitíðindin um Jesú.